Óheppileg mynd

Það er skelfilega óheppilegt sjónarhornið sem mbl sýnir af Sundlaug Kópavogs með þessari frétt, ég sé ekki betur en að það sýni fyrst og fremst viðbygginguna sem tekin var af Högnu fyrirvaralaust með ruddalegum hætti.  En með því með var höfundarrétti hennar og gildi hönnunar gefið langt nef.

Sérstaklega er þetta neyðarlegt fyrir mbl, þar sem hún kom inn á þetta mál í þakkaræðu sinni í kvöld, sem einu opinberu byggingunni sem hún hefði komið að á Íslandi, en hana hefði hún ekki fengið að klára.

Legg ég til að mbl finni betri mynd með fréttinni, svo höfuðið sé nú ekki bitið af skömminni.

______________

21:12 Þakka mbl snör viðbrögð.


mbl.is Högna Sigurðardóttir hlaut heiðursverðlaun Íslensku sjónlistarverðlaunanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Garðarsdóttir

Myndinni var svissað út núna um níuleytið í kvöld fyrir mynd sem betur á við

En þetta var satt ... mjög óheppilegt 

Jóhanna Garðarsdóttir, 21.9.2007 kl. 21:10

2 identicon

Æ.. ég varð einmitt dálítið reið þegar ég sá þetta.

En um leið fann ég þetta blogg. Og það gladdi mig.

Mun heimsækja aftur síðar :)

arna (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband